Hraðahindranir á Ægisgötu

Hraðahindranir á Ægisgötu

Ég vil sjá bæði hraðahindranir og göngubrautir við Ægisgötuna. Þessi gata sem í grunninn er róleg hverfisgata með 30 km hámarkshraða er skyndilega orðin umferðaræð fyrir rútur sem keyra þarna oft á dag, en þessir langferðabílar auk annarra ökumanna virða sjaldnast hámarkshraðann. Gatan sker orðið hverfið í sundur og þessu þarf að aftra, þetta er gönguleið margra barna í skóla, auk þess sem hraðinn á Ægisgötunni leiðir til hraðari gegnumaksturs í götunum sem út frá henni liggja.

Points

Ægisgatan er skyndilega orðin umferðaræð fyrir rútur sem keyra þarna oft á dag, en þessir langferðabílar auk annarra ökumanna virða sjaldnast hámarkshraðann (30 km). Gatan sker orðið hverfið í sundur og þessu þarf að aftra, þetta er gönguleið margra barna í skóla, auk þess sem hraðinn á Ægisgötunni leiðir til hraðari gegnumaksturs í götunum sem út frá henni liggja.

Það mætti líka setja gönguljós á Ægisgötuna.

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/8088

Sammála

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information