Setja tvö fótboltamörk á grassvæðið hliðina á Ljósheimaróló

Setja tvö fótboltamörk á grassvæðið hliðina á Ljósheimaróló

Þarna er frekar stórt grænt svæði sem enginn nýtir almennilega nema sem sleðabrekku á veturna. Þarna væri sniðugt að setja tvö miðlungsstór fótboltamörk sem krakkar gætu nýtt yfir sumartímann. Þetta gæti verið svipað og fótboltavöllurinn sem er hliðina á Orminum (leiktækið) í Laugardalnum. Þetta þarf ekki að vera stór völlur. Kannski þyrfti að fylla upp í einhverjar holur til að gera yfirborðið slétt.

Points

Illa nýtt grænt svæði þar sem hægt væri að gera miklu betur. Það er alveg hægt að nýta það undir fleira en sleðabrekku.

Frábær hugmynd, þarna til hliðar er líka tilbúið malbikað plan sem líklega var hugsað fyrir körfuboltavöll. Væri ekki sniðugt að bæta við körfu þarna í leiðinni ?

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7368

Nákvæmlega það sem vantar

Frábær hugmynd. Strákarnir mínir burðast oft með lítið mark þarna á sumrin. Það er enginn grasvöllur í nágrenginu svo þetta væri einföld og ódýr lausn til að bæta úr því

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information