Lifandi hljóðmön við Gullinbrú

Lifandi hljóðmön við Gullinbrú

Gróðursetja þétt gerði barrtrjáa Bryggjuhverfismegin við Gullinbrú frá rauða húsinu á horni Stórhöfða niður að aðreininni inn í hverfið.

Points

Svona gerði myndi minnka bæði hljóð og rykmengun í hverfinu auk þess að svæðið yrði fallegra væri það skógi vaxið.

Ég er sammála þessu þ.e. að aðreininni en ekki lengra. Tré sem gróðursett hafa verið ofan á möninni nær brúnni munu verða vandamál í framtíðinni og skyggja á og byrgja útsýni upp í Grafarvog.

Víðsýni til austurs myndi lítið minnka, trén þyrftu að verða 23-30 metra há til að byrgja útsýni af öðru en götunni sjáfri og neðri hluta veitingastaðsins hjá Nings. Það væri liklega bara efsti hluti hverfisins sem myndi missa af því að sjá bílaumferðina sem skapar mengunina.

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7823

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information