Ný leiktæki við Rimaskóla

Ný leiktæki við Rimaskóla

Rimaskóli er góður og flottur skóli en útisvæðið þar er orðið mjög þreytt. Stór skóli með góða frístund svo lóðin er mjög mikið notuð. Miðjan í grafarvogi og er Rimaskóli oft notaður t.d. eins og á sumardaginn fyrsta. Börn hafa lítið að gera á lóðinni því er það ósk mín að sú skólalóð verði tekin í gegn og sett ný leiktæki sem börnin hafa gaman af.

Points

Körfuboltakörfur eru nánast allar bilaðar/ónýtar (skakkir hringir og vantar netin). Fótboltavöllurinn/sparkvöllurinn er sundurtættur og þarfnast yfirhalningar.

Leiktækin í Rimaskóla eru orðin mjög þreytt og léleg. Kastalinn sem er á staðnum er næstum eina leiktækið fyrir börnin. Þrepin upp í kastalann eru orðin eydd og mjög erfitt fyrir börnin að komast upp í kastalann. Í miðjunni á skólalóðinni þar sem hægt væri að gera margt skemmtilegt er ekki mikið að hafast við. Rólurnar fyrir utan Tígrisbæ eru flottar og nauðsynlegt að hafa rólur. Margir í hverfinu nýta sér þetta svæði um helgar til að leika við börnin sín.

Útisvæðið er í mikilli niðurníðslu og þarfnast viðhalds og uppfærslu. Ótrúlegur munur á útisvæðum miðað við aðra skóla. Hvet borgarfulltrúa að koma bara í heimsókn og sjá girðingar að hruni komnar, ónýt leiktæki og körfur o.s.frv...

Eg er pabbi þriggja barna við rimaskola. Það elsta er að fara í 7.bekk. Á þeim tíma sem hann hefur verið í skólanum hefur lítið sem ekkert verið gert við útilóðina ef frá er talið brekkan við innganginn. Það er agalegt að hugsa til þess að 6 ára dóttir mín og 9 og 12 ára synir mínir eigi að leika sér með brotnum úrsérgöngnum körfum, rifnum mörkum, slitnum rólum og hættulegum kastala enn eitt árið. Ekki hefur verið málaðar leikjalínur á stéttina síðan foreldrafélagið gerði það fyrir 5 eða 6 árum.

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7346

Mætti líka nýta betur svæðið sem er fyrir aftan lausu kennslustofurnar. Er í dag eitt stórt malarplan og stórt ónýtt grassvæði þar fyrir aftan sem er í mikilli órækt.

Öll leiktæki á svæðinu orðin mjög lúin og úr sér gengin svo og allt útisvæðið. Nauðsynlegt að endurnýja þetta allt.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information