Skatepark (hlaupahjóla, hjólabretta og bmx leiksvæði)

Skatepark (hlaupahjóla, hjólabretta og bmx leiksvæði)

Hugmyndin byggir á því að setja upp svæði með römpum, railum og litlum tröppum þar sem allir þeir sem hafa áhuga á hlaupahjólum, hjólabrettum og bmx hjólum geta leikið sér og æft ýmis trikk. Hægt er að setja upp mismunandi brautir til að svæðið henti öllum aldurshópum. Góð hugmynd til að fá börn og unglinga til að eyða meiri tíma í leik og hreyfingu útivið, þar sem þetta sport er orðið mjög vinsælt.

Points

Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7927

Mér finnst mikil vöntun á þessu. Ég og mín fjölskylda erum ný flutt í Úlfarsárdal og eru krakkarnir mínur mikið á hjólabrettum. Það væri gaman að sjá þetta gerast!

Þegar börn eldast þá fara þau minna og minna út að leika sér, og hanga oftar inni í tölvunni. En þar sem hlaupahjól, hjólabretti og bmx hjól verða sífellt vinsælli hjá börnum og unglingum, gefur það augaleið að ef sérstök svæði eru til þar sem þau geta bæði leikið sér og æft ýmis trikk er hægt að fá þau til að eyða meiri tíma úti og hreyfa sig. Skatepörk eru til í sumum hverfum en þar sem erfitt getur verið fyrir börn að komast á þau vegna vegalendar, er nauðsynlegt að hafa þau í hverju hverfi.

Nauðsynlegt að fá skemmtileg útisvæði fyrir eldri krakka, svo minni líkur séu á því að þau festist inni í tölvuleikjum. Ef þau hafa skemmtileg svæði að leika sér á þá eru meiri líkur á því að þau haldi áfram að fara út að leika eftir ákveðinn aldur. Svona svæði, stærri og fjölbreyttari, vantar alveg klárlega á fleiri staði í Reykjavík. Svo er áhugi á svona svæðum að aukast, einnig meðal stúlkna.

Nauðsynlegt fyrir krakkana. Þau eru rosa mörg að biðja um þetta og svotil engin aðstaða til staðar. Þetta er bara steypa og stál og þarf ekki að vera dýrt. Ingólfstorg er ekki öruggt fyrir börn.

Það vantar klárlega svæði fyrir þetta sport, strákarnir okkar eru á bmx og hjólabrettum og væri æskilegra að þeir hefðu öruggt svæði til að stunda sín áhugamál í stað þess að leita í bílastæðahús eða önnur svæði sem gætu skapað hættu. Strákarnir hafa smitað okkur foreldrana af þessu hjólabretta sporti sem er auðsjáanlega að vaxa hratt í vinsældum hér á landi. Við fjölskyldan styðjum því þessa hugmynd heilshugar!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information