Við gatnamót Selásbrautar og Brekknaás er svæði fyrir trukka. Þetta svæði er til skammar fyrir hverfið. Það er í góðu lagi að hafa þarna aðstöðu til að geyma þessa stóru bíla, en það þarf að gera það betra en það er. Eins og er, þá er þetta að verða nokkurs konar bílakirkjugarður því þarna hafa safnast númerislausir bílar ásamta mörgu öðru drasli. Jarðvegurinn er bara möl, svo þarna er allt vaðandi í olíu í leysingum og mikilli bleytu þannig að olían rennur um alla götu.
Umhverfismengun og mikill líti fyrir umhverfið.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/8010
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation