Tröppur upp Vatnshólinn við Háteigsveg

Tröppur upp Vatnshólinn við Háteigsveg

Að lagðar verði járntröppur eða tréþrep upp Vatnshólinn aftanverðan með handriði á þeirri hlið sem snýr að Tækniskólanum, þar sem hurðirnar eru inn í hólinn. Tröppurnar yrðu staðsettar svo að ásýnd hólsins breytist ekki frá Háteigsvegi eða Vatnsholti. En tröppurnar munu nýtast öllum, hverfisbúum, börnum að sumri sem vetri, ferðamönnum og borgarbúum öllum. Svo ég tali nú ekki um áramótin þegar hverfið safnast saman uppi á hólnum. Eins og hóllinn er núna er þarna bara hrein og klár slysagildra.

Points

Vatnshólinn er fjölsóttur af börnum, fullorðnum og ferðamönnum. Fólk og börn reyna að staulast upp brattann og renna svo niður þegar í hálfan hólinn er komið. Ferðamenn koma hér í ríkum mæli, en frá hólnum er gott útsýni yfir borgina. Á veturna renna börn sér niður hólinn á sleðum en eiga erfitt með að komast upp. Á sumrin er hóllinn uppspretta nýrra ævintýra hjá börnunum í hvert sinn sem þau heimsækja hann. Tröppur geta fækkað slysum og gert fleirum kleift að njóta útsýnisins frá Vatnshólnum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information