Gangbraut yfir Grænuhlíð við Bogahlíð

Gangbraut yfir Grænuhlíð við Bogahlíð

Hvað viltu láta gera? Setja hraðahindrun/gangbraut yfir Grænuhlíð Bogahlíðamegin. Hvers vegna viltu láta gera það? Þarna yfir ganga daglega börn á leið í skóla og menntaskóla. Lýsing er slæm og mikið af bílum lagt við hornið svo að skygni er afleitt og oft þarf að ganga út á götuna til þess að sjá hvort bíll er að koma.

Points

Ég er hjartanlega sammála þessu. Auk þess þarf að gæta sérstaklega að því að ekki sé hægt að leggja þarna á hornunum, en þetta er líka hættulegt þegar maður ekur úr Grænuhlíð og beygir inn á Bogahlíð (í báðar áttir), þar sem maður verður að aka út á götuna, áður en maður sér hvort bílar eru að koma eftir Bogahlíðinni.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information