Gönguljós á Bústaðaveg milli strætóskýla beggja vegna götunnar, móts við LSH
Margir þeirra sem koma með strætó eða gangandi til/og frá vinnu á LSH þurfa að fara þarna yfir götuna á gangbraut. Bílaumferð á álagstímum er oft hröð og mikil og áhugi ökumanna mismikill að hleypa gangandi fólki yfir. Einnig er skyggni þarna lélegt í skammdeginu. Samskonar gönguljós eru annarsstaðar á Bústaðavegi, við Grímsbæ og önnur á grensásvegi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation