Svæði sem markast af Katrínartúni Rauðarárstíg og Laugarvegi

Svæði sem markast af Katrínartúni Rauðarárstíg og Laugarvegi

Hvað viltu láta gera? Þar er leikvöllur æfingartæki og körfuboltavöllur. Þarf að laga þarna til sóðalegt og vont aðgengi. Tækin er útelt og léleg. Bílaumferð þarna sem þarf að draga úr. Ruslatunnur út um allt. Gömul Bíladekk. Illa hirtur gróður. Þetta þarf allt að laga og gera fallegt. Þetta er í miðborginni og gæti verið demantur miðboraginna. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Þessi garður gæti orðið mjög aðlaðandi en það þarf að hirða hann betur. Það kom enginn frá borginni í sumar til að snyrta beð eða slá gras eða klippa tré og runna. Það þarf að fjölga æfingatækjunum og klára að ganga frá aðgengi inn í garðinn frá Bríetartúninu vestast. Garðurinn þarf líka að fá nafn og þar væri tilvalið að halda sumarhátíðir, markaði o.fl.

Þessi almenningsgarður er í niðurníðslu og væri gaman að taka stíga í gegn og taka allan arfa á milli hellna. Það væri líka sniðugt að byggja yfir ruslatunnurnar en þær eyðileggja ásjónu svæðisins mjög mikið. Passa að gróður sé vel hirtur.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Laugardals á mánudaginn næstkomandi þann 26. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/439145210721546/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information