Leggja bílum við Hæðargarð skáhalt upp að húsunum
Rökin fyrir því að leggja bílum við Hæðargarð skáhalt upp að húsunum eru þau að í seinni tíð hefur bílaeign íbúa aukist mjög og því rúmar svæðið fyrir framan hvert hús ekki nema fjóra bíla eða einn bíl á hverja íbúð og alls ekki reiknað með gestum. Þetta veldur því að menn leggja sumir á ská, aðrir meðfram og enn aðrir handan götunnar, jafnvel uppi á grasinu. Augljóst er að þar sem íbúarnir leggja á ská rúmast fleiri bílar og auðveldara er t.d á veturna að keyra í og frá stæðunum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation