lengja ferðir strætó
fólk sem vinnur til 12 á miðnætti kemst varla heim til sin nema með miklu veseni eftir að strætó hætti að ganga kl 11
Það að fáir nýti sér þjónustu strætó seint á kvöldin, hvort er það vegna þess að hún [þjónustan] sé ekki til staðar eða vegna þess að fólk ferðist ekki á kvöldin? Myndu aukin þjónusta auka ásókn í hana, hefur það verið skoðað? Ég veit það fyrir mína parta að ég fer ekki í kvikmyndahús á kvöldin vegna þess að ég kæmist ekki heim aftur að sýningu lokinni.
Ef þú vinnur lengur en strætó gengur á atvinnurekandinn einfaldlega að koma þér heim með Taxa eða greiða þér ökustyrk...
Myndi segja að strætó eigi að ganga til 00,30, þannig að þeir sem fara í leikhús, kvikmyndahús eða á kaffistaði geti notað strætó. Svo á auðvitað að rukka fyrir bílsstæði í miðbænum til miðnættis. Þettað er gert í mörgum borgum Evrópu og þykir sjálfsagt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation