Setja upp sambærileg ljós eins og þau sem eru á Bústaðvegi við Sprengisand. Reyna að takmarka umferðina um Harahlíðina á morgnanna þegar grunnskólabörn eru á ferð. Milli klukkan 8 og 9 er nánst bíll við bíl í vestur átt í Hamrahlíðinni og ef að vinstri beyjan af kringlumýrarbrautinni yrði ekki leyfð þennan tíma myndi það bæta mikið.
Milli klukkan 8 og 9 er mjög mikil umferð á Harahlíðinni í vestur. Börn sem eru að fara í Hlíðaskóla eru í mikilli hættu þarna á morgnanna og þá að það séu gönguljós þá dugar það ekki til alltaof margir virða ekki ljósinn og aka yfir á rauðu. Hlíðaskóli er með táknmálssvið og því eru mörg heyrnarskert börn í skólanum sem eiga erfiðara með að meta umhverfishljóð. Blindarfélagshúsið er í hverfinu og því mikið af blindum og sjónskertum á ferðinni sem þarf að taka tillit til.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation