Almenningssalerni í miðbænum
Víðsvegar um Soho í UK (þar sem flestir skemmti og veitingastaðir eru) eru einfaldar hlandskálar á hverju föstudageftirmiðdegi og voru horfnar með götusópurunum á sunnudegi. Eftir eina ferð um miðbæinn þekkti maður þessar skálar í útliti, lærði hvar þær voru staðsettar og notaði þær í öllum tilfellum frekar en að kasta þvagi á húsvegg. Reykjavíkurborg ætti hæglega að geta mætt auknum mannfjölda í miðbænum sem þarf að losna við þvag með þessum hætti. Snyrtilegt, einfalt og engin ammoníaksfýla.
Fólk sem býr í miðbænum þarf að búa við að migið sé á hús þeirra og það sama þurfa verslunareigendur að glíma við. Þó er vart við gerendur að sakast þegar salernisaðstaða almennings í miðbænum er bundin við 3 klósett sem falin eru innaní 5 metra háum ruslatunnum. Skemmtistaður ætlaður 80 manns fengi aldrei úthlutað leyfi með slíka salernisaðstöðu. Afhverju þykir þetta þá nóg fyrir miðbæ Reykjavíkur sem fær 600.000 ferðamenn í heimsókn á ári og tugir þúsunda Íslendinga skemmta sér í hverja helgi?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation